Vika 37
Það
gæti lekið vökvi úr brjóstunum þínum. Það getur lekið við
það að þú heyrir barn gráta en það einnig lekið alveg upp úr þurru.
Það sem lekur er broddurinn sem inniheldur prótein og mótefni.
Broddurinn er hin fullkomna fæða fyrir nýfætt barn, það besta sem
barnið fær áður en mjólkin fer að myndast. Barnið getur ekki hreyft
sig mikið um þar sem plássið er alltaf að verða minna og minna.
Spörkin og bylturnar eru hins vegar kraftmikil. Nú er mjög
mikilvægt fyrir þig að fá eins mikla hvíld og svefn og þú mögulega
getur. Fæðingin verður auðveldari og þú verður fljótari að jafna
þig ef þú ert vel úthvíld.
Barnið
heldur áfram að þyngjast. Litlu lungun eru að verða
tilbúin til að starfa. Barnið hefur nú þétt grip með höndunum og
kyngir um 750 ml af legvatni á dag. Það vegur nú um 2,7
kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um
32,5
sm.
Það er ekkert barn komið
ennþá, en ég vona að það fara nú bara að koma bráðum, þar sem ég er
orðin mjög þreytt og sef lítið á nóttunni og er komin með mjög
mikinn bjúg sem virðist ekkert ætla að hverfa, það kemur bara meira
og meira. Ég er að fara í skoðun á þirðjudaginn og það verður sko
mikið kvartað og kveinað þá
Árni heldur að það komi um næstu
helgi, það verður gaman að vita hvort hann hefur rétt fyrir sér eða
ekki, en ég væri mjög sátt ef það kæmi þá, þá verða líka næstum
komnar 38 vikur og barnið fullburða/fullþroskað, og við erum líka
seif með að geta átt hérna á Selfossi, en það er það sem ég vil
helst gera, nenni ekki að fara að eiga í bænum í þeirri
færibandaaðstöðu sem þar er, það er allt mikið rólegra og
heimilislegra hérna á Selfossi
Ég skrifa kannski eitthvað
þegar ég er búin í skoðun á þriðjudaginn, en þangað til þá biðjum
við að heilsa ykkur
Íris og bumbuhnoðri

Ps. setti nýju sónarmyndirnar inn
á síðuna hjá hnoðranum 